Psalms 3

1Sálmur Davíðs, þá er hann flýði fyrir Absalon syni sínum. 2Drottinn, hversu margir eru mótstöðumenn mínir, margir eru þeir er rísa upp í móti mér. 3Margir segja um mig: ,,Hann fær enga hjálp hjá Guði!`` [Sela] 4En þú, Drottinn, ert hlífiskjöldur minn, þú ert sæmd mín og lætur mig bera höfuð mitt hátt. 5Þá er ég hrópa til Drottins, svarar hann mér frá fjallinu sínu helga. [Sela] 6Ég leggst til hvíldar og sofna, ég vakna aftur, því að Drottinn hjálpar mér. 7Ég óttast eigi hinn óteljandi manngrúa, er fylkir sér gegn mér á allar hliðar. 8Rís þú upp, Drottinn, hjálpa mér, Guð minn, því að þú hefir lostið fjandmenn mína kinnhest, brotið tennur illvirkjanna. [ (Psalms 3:9) Hjá Drottni er hjálpin, blessun þín komi yfir lýð þinn! [Sela] ]
Copyright information for Icelandic